Saksóknari í Sameinuðu arabísku furstadæmunum sem rannsakar árás flugmanns á flugstjóra FlyDubai segir að hann hafa ráðist að honum með öxi og hann hafi ætlar sér að fremja hryðjuverk.Fólk öskraði af hræðslu um borð enda voru farþegar vissir um að flugvélin myndi hrapa. Flughæð hennar hafði lækkaði um meira en helming þegar farþegar náðu að yfirbuga flugmanninn.Nafn flugmannsins, sem er frá Óman, hefur ekki verið staðfest opinberlega en ónafngreindir heimildarmenn hafa sagt erlendum miðlum að hann heiti Hamam al-Hamami.Hamad Saif Al Shamsi, ríkissaksóknari í Sameinuðu arabísku furstadæmunum, greindi frá því í dag að rannsókn á atvikinu hafi leitt í ljós að hann hafi ætlað sér að fremja hryðjuverk.Þá hafi hann ráðist á flugmanninn með neyðaröxi, sem er skyldubúnaður í flugvélum og ætluð til