Hópslysaáætlun hefur verið virkjuð á Austurlandi vegna fjögurra bíla áreksturs á Jökuldal. Þetta staðfestir Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Kristinn Ólafur Guðnason, yfirlögregluþjónn á Austurlandi, segir slysið alvarlegt en vildi ekki tjá sig efnislega um það að svo stöddu.