Hópslysaáætlun virkjuð vegna alvarlegs umferðaslyss á Jökuldal

Hópslysaáætlun hefur verið virkjuð vegna fjögurra bíla áreksturs við Háreksstaðakvísl á Jökuldal á Austurlandi. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Austurlandi barst tilkynning um slysið klukkan hálf tólf í dag. Þar hafi sagt að átta einstaklingar væru í bílunum. Boð bæru með sér að einhverjir væru alvarlega slasaðir.Sjúkralið, björgunarsveitir, þyrla Landhelgisgæslunnar og Rauði krossinn hafi verið boðuð á vettvang. Slysið er talið alvarlegt.Vegurinn um Jökuldal er lokaður meðan vinna á vettvangi stendur yfir. Ekki er á þessu stigi hægt að gefa frekari upplýsingar. Ásgeir Erlendsson upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar segir í samtali við fréttastofu að þyrla gæslunnar hafi verið kölluð út vegna slyssins kl. 11:45. Jón Þór Víglundsson upplýsingafulltrúi Landsbjargar staðfestir einnig
Hópslysaáætlun virkjuð vegna alvarlegs umferðaslyss á Jökuldal

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd