Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, tók fyrstu skóflustunguna vegna átaks ríkisstjórnarinnar við endurheimt votlendis á ríkisjörðum í gær. Hún var tekin á á ríkisjörðinni að Sogni í Ölfusi. Þar verður lokað um fjórum kílómetrum af framræsluskurðum og votlendi endurheimt á um 25 hekturum.Greint var frá þessu í tilkynningu á vef Stjórnarráðs Íslands. Þar segir að endurheimt votlendis sé meðal forgangsverkefna ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum.Hún dragi úr losun gróðurhúsalofttegunda frá framræstu landi og geti aukið seiglu vistkerfa gagnvart áhrifum loftslagsbreytinga sem og stutt við líffræðilega fjölbreytni. Endurheimt votlendis er ein þeirra aðgerða sem ætlað er að stuðla að markmiði Íslands um árlegan 400-500 þúsund tonna samdrátt á losun á koltvísýringi frá