Ráðast í aðgerðir vegna sýndargjaldmiðla í tölvuleikjum

Neytendaverndarstofnanir í Evrópu beina spjótum sínum að níu tölvuleikjaframleiðendum í samhæfðum aðgerðum. Markmið aðgerða samstarfsnets stofnananna er að treysta réttindi tölvuleikjaspilara en þær snúa að því að tryggja gagnsæi og sanngirni við notkun sýndargjaldmiðla í tölvuleikjum.Greint var frá aðgerðunum á vef framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins. Þær eru liður í að fylgja eftir áætlun ESB um ákveðnar meginreglur um sýndargjaldmiðla tölvuleikja sem kynntar voru á síðasta ári. Hvað eru sýndargjaldmiðlar? Sýndargjaldmiðlar, eða virtual currencies upp á ensku, eru gjaldmiðlar innan tölvuleikja. Spilarar kaupa sýndargjaldmiðla fyrir raunverulega peninga og geta nýtt til að kaupa ýmislegt innan tölvuleikja, til dæmis muni eins og flíkur, aukaborð eða áskrift. Sýndargjaldmiðlar eru til dæm
Ráðast í aðgerðir vegna sýndargjaldmiðla í tölvuleikjum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd