Úkraínumenn byrjuðu sjálfir að þróa vopn til að verjast innrásarher Rússa eftir allsherjarinnrásina 2022 og þróunin í hergagnaframleiðslu þeirra hefur síðan verið hröð. Þá er stríðsreksturinn frábrugðinn því sem þekktist á síðustu öld. Fjallað er um málið í fréttaskýringaþættinum Heimskviðum á Rás 1 eftir hádegisfréttir.„Það má segja að við séum að upplifa ákveðna byltingu í hernaðartækni,“ segir Erlingur Erlingsson hernaðarsagnfræðingur. „Og stríðið í Úkraínu er mjög einkennilegt, það er annars vegar hálfgerður skotgrafahernaður eins og menn myndu kannast við úr fyrri heimsstyrjöld þar sem stórskotalið er enn mjög mikilvægt. Hins vegar er þetta mikla drónabelti beggja vegna víglínunnar þar sem árásir eru tíðar. Þannig að þetta er nokkurs konar vísindaskáldskapur en líka gamaldags stríð se