Rigningar er að vænta í dag. Samkvæmt Veðurstofu Íslands má gera ráð fyrir suðaustan- og sunnanátt upp á 8-13 metra á sekúndu og hita á bilinu 7-12 stig. Þá er spáð talsverðri úrkomu á Suður- og Vesturlandi fram undir kvöld.Í fyrramálið er von á vestan- og norðvestanátt upp á 8-13 metra á sekúndu. Með deginum geta síðan komið hvassari vindstrengir syðst á landinu. Víða rigning en yfirleitt þurrt á Suðausturlandi og Austfjörðum, og síðan hægari norðanátt annað kvöld með súld á norðanverðu landinu.