Fernt í gæsluvarðhaldi grunað um morð

Tvær konur á þrítugs- og fimmtugsaldri og tveir átján ára karlmenn hafa verið handtekin og ákærð fyrir að hafa myrt 37 ára gamlan karlmann í bænum Nanortalik á Suður-Grænlandi.Lögreglubíll á ferð í höfuðstaðnum Nuuk.EPA / Mads Claus RasmussenGrænlenska lögreglan greinir frá þessu í fréttatilkynningu og segir manninn hafa fundist látinn í húsi í bænum á fimmtudagskvöld. Þrjú hinna handteknu hafa verið úrskurðuð í 27 daga gæsluvarðhald en eldri konunni verður aðeins haldið í þrjá daga. Lögregla segir rannsóknina viðamikla og að ekki verði nánar greint frá málavöxtum að svo stöddu til að vernda rannsóknarhagsmuni.
Fernt í gæsluvarðhaldi grunað um morð

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd