Lögregla skarst í leikinn þegar piparúða var beitt í slagsmálum í vesturhluta höfuðborgarsvæðisins. Sá sem úðanum beitti var handtekinn og vistaður í fangaklefa.Lögregla handtók einstakling sem beitti piparúða í slagsmálum í nótt.RÚV / Vignir Már EiðssonEinn var færður í hendur lögreglu af dyraverði sem hafði handsamað hann. Sá hafði veist að fólki og verið til ama fyrir gesti og gangandi en neitaði að segja til nafns þegar lögreglu bar að garði og var hann því vistaður í fangaklefa.Flest verkefni lögreglu þennan morgun sneru annars að akstri og umferð ásamt almennu eftirliti. Ein hávaðakvörtun barst og þegar lögregla kom á staðinn fundu lögreglumenn megna kannabislykt. Voru þrír handteknir grunaðir um sölu og dreifingu fíkniefna.