Íslendingar fylgdust stoltir með Hildi Guðnadóttur raða inn verðlaunum fyrir tónlist: Grammy-verðlaun, Golden Globe og Óskarinn. Fleiri íslenskir listamenn, sem hafa fengið tækifæri til þess að stunda tónlistarnám á uppvaxtarárunum, hafa náð langt á alþjóðavettvangi. Enda ætlar Reykjavíkurborg að „verða heimsþekkt menningarborg“, suðupottur menningar og lista, líkt og fram kemur í menningarstefnu Reykjavíkurborgar. Þar er áhersla lögð á að listin sé...