Trump heitir milljónum eldri borgara eingreiðslu

Donald Trump Bandaríkjaforseti heitir meira en 20 milljónum roskinna landsmanna nærri hundrað dala eingreiðslu til að greiða fyrir iðgjöld í sjúkratryggingakerfinu Medicare B. Það er jafnvirði rúmra tólf þúsund íslenskra króna.Trump greindi frá þessu á samfélagsmiðlinum Truth Social. B-hluta kerfisins er ætlað að greiða fyrir lækniskostnað og komur á göngudeildir sjúkrahúsa.Trump segir í færslunni að fjármunir komi úr Medicare-umbótasjóðnum sem Demókratar hafi „einungis nýtt til fjármögnunar svika, sóunar og misnotkunar í þágu sérhagsmuna vina sinna“. Þar utan hafi þeir hækkað kostnað við heilbrigðisþjónustu.„Nú nýtum við þennan sjóð til að lækka kostnað aldraðra verulega,“ segir Trump og bætir við að hann hafi heitið að vernda og varðveita Medicare og almannatryggingakerfið sem hafi verið
Trump heitir milljónum eldri borgara eingreiðslu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd