Framleiðsla jókst á nauta- og fuglakjöti í ágúst

Prósenti meira var framleitt af kjöti á Íslandi í ágúst síðastliðnum en á sama tíma fyrir ári. Hagstofa Íslands segir að alls hafi þá verið framleidd 1.872 tonn af kjöti.Nautahakk er vinsælt í margskonar rétti.PEXELS / Angele J.Mest munar um nautakjöt sem fór úr 372 tonnum í fyrra í 383 tonn, sem eru um 11 af hundraði. Framleiðsla á alifuglakjöti jókst um 3 prósent en svínakjötsframleiðsla minnkaði um fimm af hundraði. Þá urðu til 70 tonn af hrossakjöti og 14 tonn af lambakjöti.Sláturtíðin í fyrrahaust skilaði næstum 8 þúsund tonnum af lambakjöti. Framleiðsla hefur dregist saman undanfarin ár. Það helst í hendur við fækkun sauðfjár og auknar vinsældir annarrar kjötvöru, ekki síst alifuglakjöts.
Framleiðsla jókst á nauta- og fuglakjöti í ágúst

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd