Stór brú í Kíev, svonefnd Norðurbrú, var sprengd í árás Rússlandshers í nótt.Árásir Rússlandshers undanfarna daga hafa bæði beinst að samgöngumannvirkjum og íbúðahverfum.EPA / SERGEY DOLZHENKOVitali Klitschko borgarstjóri Kíev segir að lokað sé fyrir alla umferð um brúna þar sem yfirborð hennar sé verulega skaddað.Árásin á Norðurbrúnna er liður í umfangsmiklum árásum Rússlands sem beinast gegn samgönguinnviðum yfir Dnipro-ánna sem tengja saman austur- og vesturhluta borgarinnar. Alls eru þær átta talsins.Önnur stór brú, svonefnd Suðurbrú, var einnig sprengd í umfangsmikilli drónaárás í gær. Raðir af kyrrstæðum bílum hafa teppt samgönguæðar borgarinnar og fjöldi fólks hefur þurft að reiða sig á tvo jafnfljóta til að komast yfir.