Norðurlöndin þurfa að spýta í lófana til að viðhalda samkeppnishæfni sinni. Þetta kemur fram í nýrri greiningu sem unnin var af ráðgjafafyrirtækinu Copenhagen Economics fyrir Norrænu ráðherranefndina.Í greiningunni er bent á að Norðurlöndin séu meðal samkeppnishæfustu svæða heims. Þar sé framleiðni almennt mikil og nýsköpunargeta sömuleiðis töluverð. Þá sé traust til stofnana verulegt. Engu að síður hafi hægt á vexti.Í því samhengi er til að mynda bent á að á meðan framleiðni á Norðurlöndum hefur aukist um 25% frá árinu 2000, þá hefur hún á sama tíma aukist um 43% í Bandaríkjunum. HELMINGI FÆRRI EINHYRNINGAR EN Í BANDARÍKJUNUM Hlutfall fyrirtækja sem eru í örum vexti á Norðurlöndum er hærra en meðaltalið í öðrum Evrópusambandslöndum. Hins vegar eru þar um helmingi færri einhyrningsfyrir