Landsstjórnin í Færeyjum hyggst kanna áhuga olíufélaga á að leita að olíu á hafsvæðinu umhverfis Færeyjar. Þetta hefur færeyski fréttamiðillinn Dimmalætting eftir Jacob Vestergaard atvinnuvegaráðherra Færeyja.700 þúsund dönskum krónum, sem er jafnvirði tæpra 13 milljóna íslenskra króna, verður ráðstafað í fjárlögum næsta árs til að kynna Færeyjar fyrir olíufélögum og vekja áhuga þeirra á olíuleit við landið.Vestergaard segir að leitað verði eftir olíu rétt sunnan við færeysku lögsöguna og þá bendi margt til þess að finna megi olíu innan hennar líka. INNSPÝTING FYRIR AFLEIDDA STARFSEMI „Þetta er ekki nýtt mál en það hefur fengið aukna þýðingu nú þegar orka og hráefni eru orðin þýðingarmikill hluti af samkeppni á alþjóðavettvangi,“ segir hann.Þá bendir hann jafnframt á að verkefnið snúist