Hákon Noregskonungur hefur ákveðið að afleggja SIKT-ráðstefnuna í núverandi mynd í ljósi breyttrar stöðu hans sjálfs, að því er segir í fréttatilkynningu frá hirðinni.Hákon Noregskonungur.EPA / Christine OlssonHákon stofnaði til ráðstefnunnar meðan hann var krónprins Noregs árið 2013, sem vettvang til að ræða framtíðaráskoranir, stjórnunarhætti og tækifæri fyrir Noreg. Ráðstefnan er ætluð leiðtogum og hæfileikafólki á aldrinum tuttugu til fjörutíu ára og hefur verið haldin árlega víðs vegar um land, þar til nú.