Fjöldi fólks í einangrun eftir að kona lést af völdum lungnapestar

Tæplega 200 manns hafa verið sett í einangrun að fyrirskipun heilbrigðisyfirvalda í Irkutsk-héraði í Síberíu í Rússlandi. Sú ákvörðun var tekin eftir að tæplega þrítugur kvenkyns starfsmaður á rannsóknarstofu sóttvarnarstofnunar héraðsins lést af völdum lungnapestar eða plágu.Samkvæmt frétt Moscow Times tjáði konan heilbrigðisstarfsfólki að hún hefði við sýnatöku fyrir slysni brotið tilraunaglas með lifandi bakteríum. Konan var lögð inn á sjúkrahús á þriðjudag með einkenni alvarlegrar lungnabólgu, var sett í öndunarvél og andaðist á fimmtudag.Sérstök heilbrigðisnefnd fyrirskipaði þá að sjúkrahúsið yrði sett í sóttkví og öll þau sem hún átti í samskiptum við fóru í einangrun. Ekkert þeirra er með sjúkdómseinkenni. Moscow Times hefur þetta eftir fréttamiðlum í Síberíu og embættismönnum.Sýkin
Fjöldi fólks í einangrun eftir að kona lést af völdum lungnapestar

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd