Norður-Kórea skaut langdrægri eldflaug í kjölfar ásakana nágrannanna

Her Suður-Kóreu segir að Norður-Kórea hafi skotið að minnsta kosti einni langdrægri eldflaug í átt að Japanshafi.Eldflaugaskot Norður-Kóreu sýnt á skjá á brautarpalli í Seúl, höfuðborg Suður-Kóreu.AP / Ahn Young-joonEldflauginni var skotið á loft í kjölfar þess að Suður-Kórea sakaði nágranna sína í norðri um að standa að baki sprengingu á hlutlausa svæðinu svonefnda á milli landanna í síðasta mánuði.Svæðið hefur markað skil á milli landanna síðan vopnahléi var komið á árið 1953. Vopnahléið stendur enn og eiga löndin því tæknilega séð enn þá í stríði.Sprengingin særði þrjá suðurkóreska hermenn en stjórnvöld í Norður-Kóreu neita því að þau beri ábyrgð á málinu.
Norður-Kórea skaut langdrægri eldflaug í kjölfar ásakana nágrannanna

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd