Christa Pike í öndunarvél eftir misheppnaða aftöku

Christa Pike liggur meðvitundarlaus á spítala eftir að tvær tilraunir til að taka hana af lífi fóru út um þúfur.Á miðvikudag átti aftaka Pike að fara fram og fékk hún tvær banvænar sprautur af pentóbarbítóli en Pike lést ekki og var aftöku hennar því frestað.Samkvæmt heimildum AFP-fréttaveitunnar var hún flutt á sjúkrahús með bólgna og brunna handleggi. Þar gekkst hún undir barkaþræðingu og liggur nú í öndunarvél.Ekki stendur til að fella niður dauðarefsingu Pike en aftökum hefur þó verið frestað í Tennessee út árið þar sem þetta er önnur misheppnaða aftakan í ríkinu á þessu ári.Bill Lee ríkisstjóri Tennessee þvertók fyrir að náða Pike, samkvæmt fréttum NBC-fréttastöðvarinnar, en lögmenn hennar krefjast þess að ekki verði reynt að lífláta Pike að nýju. EIN SÚ YNGSTA SEM DÆMD HEFUR VERIÐ
Christa Pike í öndunarvél eftir misheppnaða aftöku

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd