Fjöldi erlendra ferðamanna hefur komið til landsins til að taka þátt í vikunni. „Vefa á borðvefstól“ var eitt af námskeiðum vikunnar.Á bænum Hrafnaseli í Flóanum var eitt af fjölmörgum námskeiðum ullarvikunnar en þar voru þátttakendurnir, allt konur, að „Vefa á borðvefstól“.„Íslenska ullin er oft uppistaðan og svo notum við eitt og annað sem skreytir,” segir Elísabet Steinunn Jóhannsdóttir Sörensen, kennari á námskeiðinu.Íslenska sauðkindin, ullin og vinnsla hennar eru í aðalhlutverki þegar ullarvikan er annars vegar.„Þetta er fjórða skiptið sem við höldum ullarviku og hún stækkar í hvert sinn. Það er mikill áhugi á náttúrulegum efnum. Fólk vill komast í ullina okkar og það koma útlendingar hérna í hrönnum til þess að taka þátt í þessu með okkur og til þess að kynnast þessu íslenska hráefn