Það eru bjartar og brosandi mæður sem ganga út úr Grensáskirkju á þriðjudagsmorgnum með börn sín í fanginu. Þær eru að koma úr Krílasálmum kirkjunnar sem er sex vikna námskeið haldið í kirkjunni fyrir allra yngstu kirkjugestina, ungbörn frá þriggja mánaða til eins árs.