Hafnarfjarðarbær hyggst ekki hækka almennar gjaldskrár umfram 2,5 prósent á árinu 2027. Þá hyggst bærinn hverfa frá lækkun á systkinaafsláttarkerfi fyrir leikskóla á þeim grundvelli að sú breyting hefði getað haft í för með sér hækkun umfram 2,5 prósent fyrir tiltekna hópa.