Ógn Rússa á Norður-Atlantshafi og norðurslóðum er alvarleg. Þetta segir varnarmálaráðherra Kanada. Rússar beiti fjölþáttaógnum og drónum á mikilvæga innviði hér og þar. Ekkert bendi til þess að þeir dragi úr umsvifum sínum.Öryggis- og varnarmál voru í brennidepli á lokuðum fundi varnarmálaráðherra nokkurra NATÓ-ríkja hér á öryggissvæðinu í Keflavík í morgun.Kanada hyggst auka hernaðarlega viðveru sína á Norður-Atlantshafi. Kanadískir hermenn og hergögn á Íslandi komi til greina. Varnarmálaráðherra Kanada segir ógn Rússa alvarlega. VEITIR EKKI AF AÐ VERA MEÐ FÆLINGARMÁTT OG VARNARGETU 10 ríki koma að viðbragðssveitinni JEF og eiga það sameiginlegt að vilja bregðast fljótt við öryggisógnum og krísum í Norður-Atlantshafi og á Eystrasaltssvæðinu. Það eru Norðurlöndin, Eystrasaltsríkin, Holl