Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS) lét í vor gera könnun um skipulags- og búsetuóskir Íslendinga. Hún var lögð fyrir rúmlega fjögur þúsund manns og um helmingur svaraði.Ýmislegt forvitnilegt kom fram í búsetukönnuninni, meðal annars að fólk vill að meðaltali hafa tvö bílastæði við heimili sitt, óskahúsið er að meðaltali tvær hæðir og þau sem svöruðu töldu að meðaltali að eftir fimm ár myndu þau búa í 124 fermetra íbúð.Þau sem sáu fyrir sér að búa í fjölbýlishúsi vildu langflest búa í litlu eða meðalstóru fjölbýli. Aðeins 8% sáu fyrir sér að búa í stóru fjölbýli, það er að segja í húsum með 17 íbúðum eða fleiri.Staðreyndin er þó sú að langmest er byggt af stóru fjölbýli. Samkvæmt nýlegri talningu HMS er stórt fjölbýli 83% af því sem nú er í byggingu á höfuðborgarsvæðinu og þrj