Tillögur ríkisstjórnar Spánar, sem áttu að leysa húsnæðiskreppuna sem hefur leitt af sér mikla mótmælaöldu í landinu, voru felldar á spænska þinginu í dag. Niðurstaðan er mikið áfall fyrir ríkisstjórn Pedro Sánchez forsætisráðherra landsins og gæti mögulega flýtt kosningum sem eiga að fara fram á næsta ári.Mótmælaaldan vegna húsnæðismála fór af stað eftir að 87 ára gömul kona var borin út úr húsnæði sem hún hafði leigt áratugum saman í Madrid, þar sem hún hafði ekki lengur efni á að borga leiguna. Fjárfestingafyrirtækið sem á íbúðina dró útburðinn til baka fyrr í þessari viku. Mótmælendur hafa meðal annars komið upp tjaldborg í miðborg Madridar.Ráðstafanirnar sem Sánchez mælti fyrir í þinginu fólu meðal annars í sér að leigusamningar myndu endurnýjast sjálfkrafa þegar þeir rynnu út og ráðs