Hornfirðingar rukkaðir um svimandi háar upphæðir fyrir mistök

Íbúum á Hornafirði brá mörgum heldur betur í brún þegar fyrstu reikningar fyrir að keyra yfir hringveginn yfir Hornafjarðarfljót voru sendir út í dag.Margir sendu fréttastofu ábendingar og hljóðuðu sumir reikningar upp á mörg hundruð þúsund krónur.Samkvæmt gjaldskrá Vegagerðarinnar er hámarksgjald á hvert ökutæki 18.750 krónur fyrir bíla undir 3,5 tonnum en 26.250 krónur fyrir bíla sem eru á bilinu 3,5 til 7,5 tonn. Sjálfvirk gjaldtaka hófst þann 1. september.Laufey Guðmundsdóttir á Höfn rekur fyrirtæki sem sér um skólaakstur fyrir sveitarfélagið.„Ég er komin með í fyrirtækjabankann 494 þúsund og fjögur hundruð fyrir að mér sýnist vera skólabílarnir. Þetta eru sex reikningar 82.400 hver,“ segir Laufey.Ekki sé þó skráð í heimabankanum fyrir hvaða bílnúmer sé verið að rukka. Þá séu einnig ru
Hornfirðingar rukkaðir um svimandi háar upphæðir fyrir mistök

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd