Búið að opna veginn um Eyrarhlíð

Vegurinn um Eyrarhlíð, milli Hnífsdals og Ísafjarðar, hefur verið opnaður á ný. Frá þessu greinir lögreglan á Vesturlandi.Aurskriða féll á veginn fyrr í dag og var lokað fyrir umferð báðum megin á meðan Vegagerðin vann við að ryðja veginn. Þá þurftu sérfræðingar Veðurstofu Íslands að meta hvort öruggt væri að opna fyrir umferð á ný.Lögreglan segir sérfræðinga Veðurstofunnar eiga eftir að funda um framhaldið. Veginum gæti verið lokað aftur vegna hættu á frekari skriðum og er fólk hvatt til að vera ekki á ferðinni að óþörfu.
Búið að opna veginn um Eyrarhlíð

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd