Verslun á netinu hefur færst mjög í aukana hérlendis síðastliðin ár.„Það hefur verið mjög mikil aukning. Við fórum úr 23 milljörðum árið 2022 og sjáum fram á að árið endi í 39–40 milljörðum,“ segir Klara Símonardóttir, forstöðumaður Rannsóknaseturs verslunarinnar.Mest kaupa Íslendingar af fatnaði en síðustu misseri hafa kaup á byggingarvörum, vefnaðarvöru og heimilisbúnaði færst í aukana.Kínverska netverslunin Temu var stofnuð haustið 2022 en náði flugi í Evrópu snemma árs 2024. Aðrir smásölurisar frá Kína, svo sem Ali Express og Shein, hafa einnig notið mikilla vinsælda. LÍNULEGUR VÖXTUR FRÁ 2022 Aukning í netverslun var mest milli áranna 2022 og 2023.„Svo er þetta bara búið að vera línulegur vöxtur á hverju einasta ári og sér ekki fyrir endann á því. Við erum ekki búin að ná toppnum e