Karl Ingi Vilbergsson, saksóknari hjá héraðssaksóknara, fer fram á 16 ára fangelsi yfir Georgios Ntentes í Kársnesmálinu svokallaða. Tók Karl svo til orða að um beinan ásetning væri að ræða og að lík brotaþola bæri þess merki að árásin hafi verið ofsafengin og hrottaleg.