Móðir ungs manns með downs heilkennið og einhverfugreiningu sagði frá því í Þetta helst að hún hefði áhyggjur af heilsu hans. Eftir að hann flutti að heiman hafi hann þyngst mikið, enda ófær um að taka réttar ákvarðanir hvað varðar eigin heilsu. Hún segir starfsfólk í íbúðakjarnanum þar sem hann býr ekki geta tekið nógu vel á málinu þar sem þau megi ekki banna honum að borða meira. Það sé nauðung sem sé bönnuð samkvæmt reglum.Samkvæmt samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks er sjálfræði fatlaðs fólks, þar með talið einstaklinga með þroskahömlun, ákaflega mikilvægt. Guðrún Valgerður, Stefánsdóttir, prófessor emiritus í fötlunarfræði við Háskóla Íslands, segir að hugtakið sjálfræði sé nú skilgreint mjög vítt sem sé breyting frá því sem áður var. Horfa þurfi til þess að fólk með