Skipar sérstakan saksóknara vegna Cornell-málsins

Kathy Hochul, ríkisstjóri New York, skipaði Letitiu James í embætti sérstaks saksóknara til að rannsaka ásakanir um að konu hefði verið nauðgað af hópi manna í Cornell-háskóla 2024.Ung kona segir að sjö karlkyns nemendur, félagar í Chi Phi bræðralaginu, hafi byrlað sér ketamín og nauðgað sér. 57 eru sagðir hafa verið þátttakendur í hópspjalli þar sem fjallað var um þetta en enginn brugðist við.Málið hefur vakið mikla athygli síðustu daga eftir að konan höfðaði mál vegna þess að mennirnir voru ekki sóttir til saka á sínum tíma.Hochul ríkisstjóri sagði í gær að ákvörðun ákæruvaldsins í Tompkins-sýslu, þar sem skólinn er, um að ákæra mennina ekki græfi undan trausti sínu á getu embættisins til að taka á slíkum málum.Lögregla og saksóknarar hafi brugðist þolandanum.Hochul fyrirskipaði James að
Skipar sérstakan saksóknara vegna Cornell-málsins

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd