Héraðssaksóknari krefst hámarksrefsingar, eða 16 ára fangelsis, yfir Georgios Ntentes grískum manni sem er ákærður um að hafa banað portúgölskum manni á fertugsaldri í Kársnesi í nóvember í fyrra.Þetta staðfesti Karl Ingi Vilbergsson, varahéraðssaksóknari við fréttastofu, en málflutningi fyrir héraðsdómi Reykjaness lauk fyrir stundu.Georgios er gefið að sök að hafa stungið manninn þrisvar sinnum í kviðinn með hníf, skorið hann, stungið með egghvössu áhaldi í hálsinn og slegið hann með þeim afleiðingum að hann lést. Hann neitaði sök fyrir dómi.Maðurinn fannst látinn á heimili sínu í hádeginu 30. nóvember. Upphaflega var talið að hinn látni hefði veitt sér áverkana sjálfur en Georgios var handtekinn nokkrum dögum síðar. Hann sat í gæsluvarðhaldi um tíma, var sleppt en hnepptur aftur í varðha