Hildur Ingvarsdóttir skólastjóri Tækniskólans segir að engum dyrum sé lokað þó að formlegar viðræður við Reykjavíkurborg séu hafnar um nýja staðsetningu skólans. Verið sé að skoða fleiri en einn möguleika í austurhluta borgarinnar og það sé lykiláhersla af beggja hálfu að vinna málið hratt..