Vilhjálmur Árnason bæjarstjóri Reykjanesbæjar segir breytingar á aðalskipulagi hafa orðið til þess að 20 manns var sagt upp hjá fiskvinnslunni Premium of Iceland. 38 störfuðu hjá fyrirtækinu Premium of Iceland í upphafi árs.Að sögn Vilhjálms var aðalskipulagi í Reykjanesbæ breytt og um leið gerðar breytingar á því hvernig fyrirtæki sækja um starfsleyfi og hvernig þau tilkynna starfsemi sína.„Stjórnsýslan hefur ekki enn þá fundið almennilega út úr því hvernig á að leysa úr þessum málum og það hefur skapað þessa flækju. Þannig að þetta er svona stjórnsýslulegt úrlausnarefni sem við höfum verið í virku samtali um við marga aðila innan stjórnsýslunnar,“ segir Vilhjálmur. „Ég á von á því að við finnum einhverja lausn á því núna á næstunni.“Starfsmönnunum var sagt upp eftir að úrskurðarnefnd umh