Ríkisstjórnin hefur ekki tekið ákvörðun um að draga úr hækkun kílómetragjalds þrátt fyrir áform sín um að hækka krónutölugjöld og gjaldskrár um 2,5 prósent í stað meiri hækkana sem boðaðar voru í fjárlagafrumvarpi næsta árs. Þetta sagði Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, í viðtali við Erlu Maríu Davíðsdóttur fréttamann að loknum ríkisstjórnarfundi í morgun. Daði Már sagði að ef draga ætti úr hækkun kílómetragjalds þyrfti að mæta því með öðrum hætti við fjárlagagerðina. Hann sagði að ekki yrði vikið frá markmiði um hallalaus fjárlög.Ríkisstjórnin ræddi á fundi sínum í dag innlegg sitt í viðræður verkalýðshreyfinga og atvinnurekenda um að koma í veg fyrir uppsögn kjarasamninga.„Meðal annars hefur verið rætt um að gjaldahækkanir myndu fylgja verðbólgumarkmiði Seðlabankans,