Undirbúa tilmæli um prófanir farsíma eftir lokun 2G og 3G

Fjarskiptastofa vinnur að tilmælum um prófun á virkni neyðarsímtala í 112 áður en símar eru settir á markað á Íslandi. Tilmælin ná til innflytjenda og seljenda farsíma og stofnunin óskar eftir samráði við þá.Þetta kemur fram í tilkynningu frá Fjarskiptastofu.Ástæðu þessarar ráðstöfunar má rekja til þess að einhverjir farsímar ná ekki tengingu við neyðarnúmerið 112 eftir að slökkt var á 2G- og 3G-farsímakerfunum á Íslandi.Símarnir ná að öðru leyti almennri farsímaþjónustu og fullnægja reglum um CE-merkingu.„Vegna þessa hefur Fjarskiptastofa sett saman drög að tilmælum um prófun allra farsíma sem seldir verða hér á landi framvegis. Fjarskiptastofa skorar á alla þá sem telja sig mál þetta varða að koma með athugasemdir við drögin og það sem betur mætti fara,“ segir í tilkynningu.Samkvæmt lögu
Undirbúa tilmæli um prófanir farsíma eftir lokun 2G og 3G

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd