„Þar sem ég lá á gólfinu áttaði ég mig á því að vélin væri að hrapa. Ég sagði við sjálfan mig: „Þetta er síðasta átakið, Smit. Hurðin er stutt frá.“ Höggin dundu enn þá á mér en mér tókst að opna hurðina.“ Þetta sagði Smit Machchhar, flugstjórinn sem varð fyrir því í flugi flydubai frá Dúbaí til Tel Aviv að hinn flugmaður vélarinnar réðst á hann. Samtalið var við Narendra Modi forsætisráðherra Indlands og var birt á Youtube-rás Modis.Eftir þetta komust farþegar inn í klefann og yfirbuguðu flugmanninn. Modi hrósaði hugrekki Machchhar og sagði það bera vott um viðhorf indverskrar þjóðar.