Einn látinn og miklar skemmdir í flóðum á Krít

Stormviðri og úrhellisrigning hefur leikið íbúa grísku eyjarinnar Krítar grátt í vikunni. Einn er látinn og flætt hefur yfir vegi og inn í hús. Þetta hefur fréttaveitan EBU eftir gríska ríkisútvarpinu ERT.Veðrahamurinn hófst á miðvikudag og tók ekki að réna fyrr en í gær. Hvassviðri og miklum rigningum er þó áfram spáð fram eftir degi í dag.Veðrið hefur haft töluverð áhrif á rafkerfið á Krít en rafmagnsstaurar hafa hrunið og rafmagnsleysis gætt í nokkrum bæjum.Þá var skólum víða lokað á meðan veðrið gekk yfir og fólk hvatt til að halda sig heima nema nauðsyn bæri til. TILKYNNT UM EITT DAUÐSFALL Í þorpinu Livadia á vesturströnd eyjarinnar sópaði vatnsflaumur hluta brúar með sér og bíll með tveimur innanborðs lenti í ánni, hermir fréttamiðillinn Euronews. Þau voru flutt á sjúkrahúsið í He
Einn látinn og miklar skemmdir í flóðum á Krít

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd