Segir umfjöllun um notkun sterkra geðlyfja skapa óþarfa áhyggjur og vantraust

Skoða þarf gjöf sterkra geðlyfja á hjúkrunarheimilum í stærra samhengi, segir Anna Björg Jónsdóttir, yfirlæknir öldrunarlækninga á Landspítalanum.Fyrr í vikunni ræddi Kveikur við fjölskyldur fólks sem taldi að ættingjar þeirra hefðu verið lyfjaðir fram úr hófi. Umfjöllunina skorti jafnvægi að mati Önnu Bjargar.„Það eina sem þessi umfjöllun gerði, því miður, er að skapa úlfúð, kvíða, vanlíðan, óþarfa áhyggjur fólks og vantraust í garð þjónustunnar og það þjónar engum tilgangi,“ segir hún.Önnu Björgu þótti lyfjagjöfin ekki skoðuð frá nægilega mörgum sjónarhornum í umfjölluninni.„Það var horft á mjög afmarkaðan þátt í starfsemi hjúkrunarheimila og starfsemi öldrunarþjónustu yfirhöfuð – sem er lyfjanotkun á ákveðnum tegundum af geðlyfjum og eiginlega svolítið sett upp eins og það væri uppruni
Segir umfjöllun um notkun sterkra geðlyfja skapa óþarfa áhyggjur og vantraust

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd