Leiðir Kristínar Svafarsdóttur og Þorbjargar Valgeirsdóttur lágu fyrst saman fyrir um áratug þegar Þorbjörg starfaði á Landspítalanum og Kristín var þar, afar veik af fíknisjúkdómi. Í dag er Kristín edrú, að læra til sjúkraliða og vill miðla reynslu sinni í þeirri von að aðrir sem veikir eru sjái að þau eigi möguleika til betra lífs.