Styrkás kaupir Malbiksstöðina á sex milljarða

Styrkás hefur fest kaup á Malbiksstöðinni og lóðum félagsins á Esjumelum. Fyrir þetta borgar Styrkás 5.980 milljónir króna í hlutafé, handbæru fé og yfirtöku skulda. 5.080 milljónir af kaupverðinu eru vegna fyrirtækisins sjálfs og 900 milljónir vegna 28.000 fermetra lóðar við Gullsléttu.Viðskiptin eru gerð með fyrirvara um samþykki hluthafafundar. Hann þarf að samþykkja útgáfu 138,7 milljóna nýrra hluta í Styrkási sem verða metnir á genginu 26,68 í kaupunum á Malbiksstöðinni.Styrkás kaupir Malbiksstöðina af Vilhjálmi Þór Matthíassyni sem stofnaði fyrirtækið fyrir 22 árum og hefur rekið það síðan.Ásmundur Tryggvason forstjóri Styrkáss sem kaupir Malbiksstöðina.Aðsend mynd
Styrkás kaupir Malbiksstöðina á sex milljarða

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd