Hlutfall fjölskyldubíla sem eingöngu nota jarðefnaeldsneyti hefur lækkað hratt á fáeinum árum

Hlutfall einkabíla sem eingöngu ganga fyrir jarðefnaeldsneyti hefur lækkað hratt í Danmörku á síðustu árum, þeir eru núna rétt tæpur helmingur en hlutfallið var 65 prósent árið 2020.DR greinir frá og vitnar í fréttatilkynningu frá Mobility Denmark, hagsmunasamtökum bílgreinarinnar í landinu. Hybrid- og blendingsbílar eru ekki taldir með í samantekt samtakanna þótt þeir séu að hluta knúnir jarðefnaeldsneyti.Bensín er enn algengasti orkugjafi danskra fjölskyldubíla en æ fleiri kaupa rafbíla sem eru orðnir rúm 24 prósent flotans. Mobility Denmark segir fjölgun rafmagnsbíla helst mega rekja til ívilnana yfirvalda sem geri þá fjárhagslega hagstæða fyrir bílkaupendur.
Hlutfall fjölskyldubíla sem eingöngu nota jarðefnaeldsneyti hefur lækkað hratt á fáeinum árum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd