Að minnsta kosti einn var drepinn í umfangsmiklum loftárásum Rússlandshers á úkraínsku höfuðborgina Kyiv í nótt og tveir til viðbótar særðust. Borgaryfirvöld sögðu í morgun að árás Rússa hafi verið beint að íbúðahverfi.Rússneska varnarmálaráðuneytið hefur ekki tjáð sig um þær ásakanir en staðfestir að árásir voru gerðar næturlangt á orkuinnviði Kyiv. Drónaárás var gerð á mikilvæga brú yfir ána Dnípró aðra nóttina í röð að sögn borgarstjórans Vitalis Klitschko. Brúin er hvort tveggja fyrir umferð bíla og lesta.Úkraínuher gerði í nótt drónaárás á rússnesku borgina Volgograd, sem áður hét Stalíngrad, þar sem stóra olíuhreinsistöð er að finna.Reuters hefur eftir héraðsstjóranum Andrei Bocharov að árásin hafi auk þess beinst að verksmiðjum í borginni sem er nærri 400 kílómetra frá landamærum Rú