Trump hótar hörku hafi Íranar staðið að baki hnífaárás flugmanns

Donald Trump Bandaríkjaforseti hótar írönskum stjórnvöldum öllu illu komi á daginn að þau tengist atlögu flugmanns að kollega sínum um borð í farþegaþotu Flydubai á leið frá Dubai til Tel Aviv á miðvikudag.Farþegum tókst að yfirbuga árásarmanninn og koma þannig í veg fyrir að þotan hrapaði á ísraelsku landsvæði. Þeim og áhöfninni hefur fyrir vikið verið hampað sem hetjum. Flestir farþeganna voru ísraelskir.Trump kvaðst aðspurður á blaðamannafundi alveg geta trúað Írönum til að standa að baki árásinni en bætti við að hafa yrði í huga að rannsókn væri nýhafin. Enginn skyldi efast um að Íranar fengju að finna til tevatnsins, reyndist svo vera.Yfirvöld í Sameinuðu arabísku furstadæmunum rannsaka hvort flugmaðurinn, sem sagður er Ómani, tengist hryðjuverkasamtökum og ísraelski forsætisráðherran
Trump hótar hörku hafi Íranar staðið að baki hnífaárás flugmanns

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd