Mikið magn vímuefna og fjármuna fundust í bifreið þar sem ökumaður var stöðvaður við hefðbundið umferðareftirlit en eftir nánari skoðun vöknuðu grunsemdir um að ökumaður bifreiðarinnar væri hugsanlega að stunda sölu og dreifingu fíkniefna. Hann var handtekinn og vistaður í fangaklefa.