Íslenskir karlmenn hafa íhaldssamari hugmyndir um karlmennsku en kynbræður þeirra á Norðurlöndum samkvæmt nýrri rannsókn. Doktorsnemi segir niðurstöðurnar sláandi og sérstaklega komi á óvart að mun fleiri íslenskir karlar en norrænir telji að hægt sé að leysa úr átökum með ofbeldi.