Skotflaug hæfði olíuskip á Hormússundi

Olíuflutningaskip kemur til hafnar í Mumbai á Indlandi eftir siglingu um Hormússund.EPA / DIVYAKANT SOLANKIEngan sakaði þegar eldflaug hæfði olíuskip á siglingu um Hormússund. Bresku siglingamálastofnuninni UKMTO barst tilkynning um að skotflaug af óþekktum uppruna hafi hæft skipið og eldur kviknað um borð. Skamma stund hafi tekið að ráða niðurlögum hans.Ekki liggur fyrir hversu mikið skipið skemmdist í árásinni eða hvort leki hafi komið að því. Rannsókn er hafin en ekkert liggur enn fyrir um hvaðan flauginni var skotið.Íranar loka áfram fyrir nánast alla skipaumferð um sundið sem tengir Persaflóa og Indlandshaf. Um fimmtungur olíuflutnings veraldarinnar fer um Hormússund á friðartímum, sem er afar mikilvægt efnahagskerfi heimsins.
Skotflaug hæfði olíuskip á Hormússundi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd