Tímamet slegið í ferð að Alþjóðlegu geimstöðinni

Tímamet var slegið þegar fjórir geimfarar á vegum bandarísku geimferðastofnunarinnar NASA komu að Alþjóðlegu geimstöðinni í nótt með fari SpaceX. Áhöfn á vegum NASA hefur aldrei verið fljótari að stöðinni því ferðin þangað frá Canaveral-höfða á Flórída tók aðeins tæpar átta klukkustundir, 7 tíma og 55 mínútur nákvæmlega.Staðsetning stöðvarinnar á sporbaug einfaldaði málið. Þetta er þrettánda áhöfnin sem fer með Dragon-fari SpaceX að geimstöðinni og verður þar næstu sex mánuði. Leiðangursstjórinn Jessica Watkins sagði þrettán happatölu. Hún er fyrsta svarta konan til að leiða geimferð.Þetta er önnur dvöl Watkins í geimstöðinni því hún var hluti áhafnar sem dvaldi þar fyrir fjórum árum. Hinir þrír eru allir nýgræðingar í geimferðum, Bandaríkjamaðurinn Luke Delaney, Rússinn Sergey Teter-yatni
Tímamet slegið í ferð að Alþjóðlegu geimstöðinni

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd