Tuttugu manns hefur verið sagt upp störfum í fiskvinnslu fyrirtækisins Premium of Iceland í Reykjanesbæ. Þetta kemur fram í tilkynningu fyrirtækisins sem birt var á vef Víkurfrétta.Þar kemur jafnframt fram að þrjátíu og átta manns hafi starfað hjá fyrirtækinu í upphafi árs en að starfsfólki hafi raunar þegar fækkað fyrir uppsagnirnar vegna aðgerða heilbrigðiseftirlits.Fyrr í mánuðinum staðfesti úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála ákvörðun heilbrigðisnefndar Suðurnesja um að leggja fimmtíu þúsund króna dagsektir á fyrirtækið þar til starfsemi í fiskvinnslunni hefði verið stöðvuð. Var það vegna umsagnar skipulagsfulltrúa Reykjanesbæjar um að fiskvinnsla að Brekkustíg 22-24 samræmdist ekki aðalskipulagi. GÆTI HAFT ÁHRIF Á FLEIRI FYRIRTÆKI Fyrirtækið bendir þó á að fiskvinnsla sé skrá