Fjölþjóðaher í Jemen undir forystu Sádi-Araba kveðst hafa grandað tveimur langdrægum eldflaugum sem komnar voru inn fyrir lofthelgi Sádi-Arabíu í nótt. Einnig hafi fjórir drónar verið skotnir niður.Herinn segir uppreisnarsveitir Húta standa að árásunum. Öflugar sprengingar kváðu við í jemensku höfuðborginni Sana'a í gær, sem Hútar kenna Sádum um.Árásir voru einnig gerðar á borgirnar Saada, Taiz og Amran að sögn fréttaveitunnar SABA sem Hútar stjórna. Sádiarabísk stjórnvöld hafa ekkert tjáð sig um árásirnar. Átök brutust út að nýju milli stjórnar- og fjölþjóðahersins og Húta í Jemen í júlí eftir nokkur tiltölulega róleg ár.